Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Bjartur Sæmundsson
  • Netfang: bjarturs@hotmail.com
  • Staður: Neskaupstaður
  • Atvinna: bjórsmakkari og læknisfræðinemi
  • Um mig: Debrecen númerið er +36302748507 Heimilisfangið Simonffy 17 1/2 Debrecen 4024

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Sumarveður

08. apríl 2010 klukkan 20:28
Sumarið er að sýna sig á ný hérna í Debrecen eftir smá kuldaskot búið að vera heitt í dag og verður það áfram næstu daga. Hiti er oftast af hinu góða svo lengi sem hann er passlegur en hérna í Debó er hann ekki passlegur. Þetta byrjar svona í góðum gír en endar í hryllingi, maður er vel grillaður í 30-36stiga hita og þar sem svitinn sprettur fram við það eitt að hugsa um að hreyfa sig. Einnig er önnur pest sem fylgir þessum hita eða moskító flugurnar, ég er greinilega hágæða steik á þeirra mælikvarða enda eins og nálapúði eftir næturnar. Áfengis bindindið hefur gengið mjög vel og eru bara 22dagar eftir með þeim fyrirvara að ég gæti jafnvel lengt þetta fram yfir próftímabilið yfir vel gengur. Valdi besta og jafnframt versta tímann í þetta, seinustu helgi var Magnea með ljótufatapartý og á morgun er hið víðfræga Gumball þar sem nemendur koma saman og þræða 14bari í Debrecen og taka skot eða bjór á hverri stöð. En ég stóð mig svo "vel" á fyrsta Gumball en þá voru 17stöðvar, komst að vísu ekki á seinustu stöðina, síðan þá hefur maður liggur við verið hræddur við þennan viðburð.
Við kláruðum valáfangann í skurðinu í gær og fengum að enda á að gera aðgerð á hundi. Við semsagt opnuðum hundinn og skoðuðum miltað og þarmana, voða sérstakt að fá að gera þetta og maður fær svona fíling að maður sé í aðgerð.
P.s. Mamma ég skal reyna að taka fleiri myndir fyrst sólin er komin upp.

Vetrarveður

06. apríl 2010 klukkan 18:55
Var að koma úr fótbolta og ég verð bara að segja að sumarveðrið hvarf eins fljótt og það kom. Búið að rigna undanfarna 2 daga og núna eru rétt svo 8 gráður og vindur. Skítakuldi en spáin fyrir næstu daga er svo hljóðandi 16-19-19-19 semsagt sól og sumar í Debrecen.
Fór á sunnudaginn í Brasilian Jiu Jitsu, sem er sjálfsvarnaríþrótt. Fyrsta skipti sem ég prófa svona og var þetta bara mjög áhugavert og gaman. Strákurinn sem kennir þetta er með mér í fótbolta þannig að ég ákvað að skella mér í einn tíma og er alveg staðráðin að fara aftur. Kunni samt ekki neitt og það sást alveg þar sem að lítill 50kg norðmaður náði semsagt að taka mig í choke hald. En út á það snýst þetta að yfirbuga andstæðinginn á jörðinni.

Hver vill verða læknir heima?

01. apríl 2010 klukkan 20:25
Það sem er að gerast á LSH styrkir mig ennþá meira í þeirri trú að ég muni ekki snúa heim eftir þetta nám hérna. Alltof mikill tími og peningur farin í þetta nám til að verða einhver þræll heima á launum sem eru töluvert verra en gengur og gerist á norðurlöndunum. Grunnlaun unglækna er fáránlega lág á Íslandi. 

Næstum því!

31. mars 2010 klukkan 21:11
Já eins fyrirsögnin segir þá var næstum því fyrsta þrumuveður ársins hérna í Debrecen. Á leiðinni í ræktina sá ég og heyrði í þrumuveðrinu, svört ský hrönnuðust upp og droparnir voru byrjaðir að falla, ég bjóst við úrhelli á leiðinni heim úr ræktinni og að ég yrði í stórhættu sökum eldinga. En nei nei þegar ég kem út eru öll ský horfin og hætt að rigna, smá fegin en á móti þá er alltaf gaman að liggja upp í rúmi þegar rigningin bylur á þakinu, mitt herbergi er undir þakinu þannig að ég er í besta sætinu(rúminu) fyrir sjónarspilið. Það fer að styttast í þetta þrumuveður.

Búin að vera á fullu í ræktinni, keypti bók eins og ég minntist á sem hefur svona prógrömm fyrir fólk eins og mig. Svona fólk sem að verður að hafa allt neglt niður annars get ég bara gleymt því að halda þetta út. Búin með 5vikur af 12vikna prógrammi, verður gaman að sjá hvernig maður verður eftir 12vikur. En þar sem ég vill sjá árangur strax og var ekki alveg ánægður með hann ákvað ég að taka stórt skref og setja sjálfan mig í mánaðar bjórbann held að það sé skaðvaldurinn sem er að halda aftur að því að sjá árangur. Verður örugglega erfiðasti mánuður lífs míns. :p

Í næstu viku lýkur skurðvaláfanga, sem ég hef verið að taka og lýkur hann á því að við gerum aðgerð á hundum. Voða sérstakt hérna í Ungverjalandi, en deildin sem við erum að læra hjá sér um að framkvæma tilraunir á hundum í rannsóknarskyni. Þetta eru víst allt sérræktaðir rándýrir hundar influttir frá Frakklandi, fyrir þetta. Kanski ekki beint stoltasta stund manns hérna í þessum skóla, maður getur hafnað að gera þetta en maður lærir með því að gera. Veit það að Kata yrði ekki sammála þessu. 

Nú er bara að vona að það fari að rigna og þrumuveðrast hérna í Ungó sem fyrst. 

F.C. Kulföldi

24. mars 2010 klukkan 20:07




Þetta er semsagt liðið sem ég er að spila með. Settum semsagt svona einhver djók nickname og þar sem nokkrir félagar mínir tóku upp á því að kalla mig BJ þá held ég mig bara við það.

P.S. Alltof heitt hérna í Ungverjalandi! 

Sumarið

23. mars 2010 klukkan 20:29
Það er alveg klárt mál að sumarið er mætt hérna í Debó. Orðið vel heitt á daginn, sem betur fer bara milt ennþá, en fljótlega fer að verða óbært hérna. Næst á dagskrá stuttbuxur og sólgleraugu. Annars bara voða lítið að frétta skólinn orðinn algjör rútína en lærdómur virðist vera að komast í gott stand, bara búið að taka mánuð um það bil. 

Búin að vera duglegur að hreyfa mig eftir mikinn skort á því, keypti mér tvær bækur, eina um æfingar fyrir ræktina og hin var um holla matreiðslu, þannig að hollustan er komin á fullt hérna i Debrecen og nú er bara að halda því áfram og helst í gegnum próftímabilið líka en það er tíminn sem maður hættir öllu svoleiðis.
Á seinustu önn var fótboltamót sem að strákur úr skólanum skipulagði og lenti liðið sem ég var að spila með í öðru sæti. Það voru ekki haldin nein en úrslit en við vorum næst stigahæstir. En þetta mót er semsagt byrjað aftur og er ég með sama liðinu og seinast en það heitir Kulföldi. F.C. sem þýðir á ungversku "útlendinga fótboltafélagið", en það samanstendur af mér og tomma og restin eru svíar. Það voru teknir einhverjar hópmyndir af okkur í nýjum bolunum okkar og vona ég að þær verði settir á netið fljótlega svo ég geti sett þær á síðuna. 

Kalt

16. mars 2010 klukkan 17:15
Ég ákvað að hringja heim og heyra í ömmu og afa, til að þakka fyrir mig og heyra í þeim hljóðið. Endar alltaf með því að ég er minntur á hvað þetta er dýrt, þar sem amma er orðinn svaka tölvugúru þá bíður maður bara eftir því að þau fái sér skype töluvert ódýrara, en samt sem áður alltaf gaman að heyra í þeim þó stutt sé.
Við spjölluðum aðeins um veðrið og svei mér þá ef það er ekki bara komið sumar á íslandi, allaveganna sumar sem ég er verða vanur að hafa heima á Neskaupstað. Hiti að meðaltali 10stig, að vísu vantaði alveg rigninguna og þokuna í Reykjavík en það er algjört grundvallar atriði fyrir gott norðfirskt sumar. 
Ég er alveg að gefast upp á hinu skóla blogginu mínu(eftir alveg tvær færslur) ég hef bara ekki nægan tíma í svona rugl þannig að ég skrifa bara um skólann hérna.
Ég held að ég hafi bloggað um það áður að ég hafi hugsað mér að fara á interrail, en núna er alveg harðákveðin að fara þetta er langþráður draumur og afmælisgjöfin mín frá mér. Þar sem Birta ætlar koma með mér þá get ég ekki bakkað útúr þessu.
Er svona aðeins búin að vera að skoða kort af evrópu og ákveða leið í gegn. Það er bara alltof mikið til að sjá á stuttum tíma. 

A.T.H. ef þér finnst leiðinlegt að lesa um læknisfræði þá máttu bara hætta að lesa. 
Við byrjuðum á nýrri internal deild í dag. Internal er svona bara eins og fólk ímyndar sér læknisfræði, almenna lækningar en svo er þessu að vísu skipt niður eftir sjúkdómum. Við erum búin að vera á ónæmisdeiid. Þar er aðallega verið að fást við sjúkdóma þegar líkaminn ræðst á sjálfan sig svokallað
auto-immune(sjálfsónæmi).
Í dag byrjuðum við á rheumatology deildinni. Kann ekki alveg að þýða rheumatology, en þar er við að fást við sjúkdóma sem leggjast á liði og jafnvel bein. Mjög góðir kennarar á þessari deild. Tókum viðtal við eina konu sem er með
osteoarthritis. Þetta er sjúkdómur þegar það verður niðurbrot á brjóski og beini. Þar sem að hægt er að koma í veg fyrir þetta með smá hreyfingu þá mæli ég með að allt gamalt fólk.....(Pabbi) leggji í það að hreyfa sig aðeins. 

afmælisdagurinn

14. mars 2010 klukkan 22:06
Já maður varð 25 um daginn og auðvitað þurfti maður að halda upp á daginn. Ég fór með vinahópnum á veitingastaðinn Csokonai, þar var borðað og mér afhentar gjafir. Ef gjafirnar endurspegla áhugamálin mín, þá þarf maður aðeins að fara að pæla í fleiri áhugamálum. Ég fékk 2 whiskey flöskur, eina palinka flösku, freyðivín og svo 13 bjóra(áttu að vera 25 en voru ekki til fleiri í búðinni), að vísu gaf Kata mér axlarbönd og gamla kalla hatt, til að minna mig á aldurinn sem ég er að komast á. Eftir matinn fórum við til Arnars til að horfa á lok man utd - ac milan og mínir menn klikkuðu ekki á afmælisdaginn minn. Þar ákváðum að opna nokkrar gjafir. Eftir það var svo kíkt á smá djamm.
Ótrúlega gott dæmi um hversu öflugt Facebook er orðið í heiminum, ég fékk vel yfir 100 afmæliskveðjur á facebook, áður fyrr mundi fólk ekki eftir afmælinu mínu. Einnig gagnast þetta mér einkar vel þar sem ég man aldrei afmælisdaga.
Þannig að netið er að taka yfir í daglegu lífi. 


 
Ég með gjafirnar frá kötu.  

Eldri

10. mars 2010 klukkan 12:13
Varð bara að setja þetta hérna inn. Þetta er mynband búið til af mömmu í tilefni dagsins, elska þessi mynbönd. Takk mamma 
 

P.s. mér liður alveg eins og ég var í gær. Ennþá ungur í anda!  

Gamall!

09. mars 2010 klukkan 20:10


Á hverjum degi eldist maður um einn dag nema á afmælisdeginum sínum þá skyndilega eldist maður um heilt ár. Fyrir mig er þessi dagur á morgun. 25 ár liðin af ævi minni fjórðungur úr öld. Mér líður ekkert eins og ég sé næstum því 25 ára mér finnst ég vera jafn gamall í dag og ég var í gær og mér á eftir að finnast það sama á morgun býst ég við. Ótrúlega fegin að hafa alist upp á neskaupstað og hafandi þá foreldra og systkini, sem buðust mér :p... Hafa gert mig að því sem ég er, bjórsvelgjandi, nöldrandi nördi í læknisfræði sem ætti að hafa gleraugu en er búin að gera svo mikið grín af gleraugnagláma fjölskyldunni minni að ég þori ekki að fá mér. 
Vá á þessum tíma hefur maður gert alveg ótrúlega margt og líka sleppt því að gera alltof margt, vonandi breytist eitthvað að því á þessum komandi árum og jafnvel mánuðum því ég stefni á að fara á interrail í sumar vonandi með byttu minni og það er sko langþráður draumur.
Andlega finnst ég ekki eins og ég sé svona gamall finnst ég ennþá vera óþroskaður og ekki nálægt því að verða "fullorðinn". Verð líklegast aldei að mínu mati fullorðinn, jafnvel þótt öllum öðrum finnist það. 

Er í rosalega góðum valáfanga í skólanum sem heitir "internet in medicine" og fjallar um hvernig læknar munu koma til með að notfæra sér netið sér til aðstoðar. Þessi áfanga fjallar um allar hliðar netsins og hvernig við getum nýtt okkur þær og ég ákvað því að gera smá tilraun um að blogga um námið mitt, semsagt bara um námið. Ég veit hvað fólk hugsar, hmmm.... hann getur varla haldið úti einu bloggi og býr svo til annað. En hitt er bara tilraun og ég er líka að vonast til að ég fari að verða virkari á þessu bloggi á komandi mánuðum. En ef fólk hefur áhuga að lesa um læknisfræði þá er síðan bjarturs.wordpress.com

P.S. Mamma ég keypti minniskort í myndavélina ég skal reyna að vera duglegri að taka myndir.  
Rétt svo 3 tímar í stóra daginn núna. Ég skal blogga aftur á morgun ef ég hef tíma og láta vita hvort eitthvað breyttist.